Elsa Lára Arnardóttir sýnir okkur B - hliðina. Hún segist vera hjátrúarfull, finnst gaman að ferðast innanlands og utan og finnst gott að vera með fjölskyldu og vinum.

Fullt nafn: Elsa Lára Arnardóttir. Gælunafn: Jú, jú, ég læt það flakka. Góðar vinkonur mínar kalla mig Grimmhildi. Aldur: 38 ára. Hjúskaparstaða? Gift Rúnari G. Þorsteinssyni. Börn? Þorsteinn Atli 15 ára og Þórdís Eva 11 ára. Hvernig síma áttu? I phone 5S. Uppáhaldssjónvarpsefni?  Miðvikudagskvöldin á Stöð 2 hitta í mark hjá mér. Hef bara sjaldan tíma til setjast fyrir framan sjónvarpið. Næ þó stundum að vinna það upp um helgar. Uppáhalds vefsíður: Hlaup.is, Instagram, Facebook og ýmsar aðrar. Besta bíómyndin? Notting Hill og eiginlega bara allar myndir með Hugh  Grant (eða það segir sonur minn). Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég er nánast alæta á tónlist, hlusta á allt frá rólegum lögum og upp í þungarokk. Ég höndla samt sem áður ekki óperur. Uppáhaldsdrykkur: Ískalt vatn og kóka kóla light. Hvað finnst þér best að borða? Hornfiski humarinn klikkar aldrei, sérstaklega ekki þegar mamma eldar hann. Hvaða lag kemur þér í gírinn? Sísí fríkar út. Ertu hjátrúarfull? Já mjög svo, forðast svarta ketti og að ganga undir stiga. Hverslags viðfangsefni myndirðu ekki leggja nafn þitt við? Hvar á ég að byrja ... get t.d. nefnt einelti. Mun heldur ekki samþykkja áfengi í matvöruverslanir. Hver var fyrirmyndin þín á yngri árum? Það hefur verið amma mín. Alltaf tilbúin til að breiða út faðminn þegar á þarf að halda, alltaf tilbúin til að veita hjálparhönd, á endalausa þolinmæði og yndisleg kona í alla staði. Amma er ein af mínum bestu vinkonum. Hver er fyrirmyndin þín í dag? Amma. Hverjir eru sessunautar þínir á Alþingi?  Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson. Hver eru helstu áhugamálin? Ferðalög innanlands og utan, samvera með fjölskyldu og vinum, fjallgöngur og hlauparúntar með frábæru félögum mínum í Skagaskokk Akranesi. Besti vinurinn í vinnunni? Það er Silja Dögg. Við erum duglegar að gera eitthvað skemmtilegt saman. Skella okkur á tónleika, ræktina og sjósund, þannig að eitthvað sé nefnt. Helsta afrekið hingað til?  Á maður ekki að skrifa hér; að fæða börnin mín. En fyrir utan það er helsta afrekið að skokka maraþon (42,2 km), tognuð á læri. Verkjatöflurnar komu mér þó þetta langt. Uppáhalds manneskjan? Það eru vinir og fjölskylda. Er svo heppin að eiga stóra fjölskyldu og góða vini. Get aldrei gert upp á milli þeirra. Besti skyndibitinn? Það er án efa Kebab. Það sem þú borðar alls ekki? Ég get alls ekki borðað slátur.  Held ég hafi fengið æviskammtinn hjá mömmu og í skólamötuneytinu í Heiðarskóla. Lífsmottóið? Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Þetta að lokum: Njótið dagsins :)

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.