Breytingar í nefndum hjá þingflokki Framsóknar
Í upphafi nýs þingvetrar verða breytingar á skipan þingmanna Framsóknar í fastanefndum Alþingis.
Stefán Vagn Stefánsson er nýr formaður fjárlaganefndar og tekur hann við formennsku af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði.
Ágúst Bjarni Garðarsson tekur sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í utanríkismálanefnd í stað Jóhanns Friðriks Friðrikssonar. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir tekur einnig sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Jóhanns Friðriks Friðrikssonar.
Jóhann Friðrik Friðriksson tekur sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Þórarins Inga Péturssonar. Jóhann Friðrik Friðriksson tekur einnig sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Stefáns Vagns Stefánssonar. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir tekur einnig sæti sem aðalmaður í velferðarnefnd í stað Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur.
Líneik Anna Sævarsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur.
Þórarinn Ingi Pétursson er nýr formaður atvinnuveganefndar og tekur hann við formennsku af Stefáni Vagni Stefánssyni.
Yfirlit yfir nefndarsetu þingmanna Framsóknar í fastanefndum:
Allsherjar- og menntamálanefnd
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 2. varaformaður
Líneik Anna Sævarsdóttir
Atvinnuveganefnd
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður
Efnahags- og viðskiptanefnd
Ágúst Bjarni Garðarsson, 1. varaformaður
Jóhann Friðrik Friðriksson
Fjárlaganefnd
Jóhann Friðrik Friðriksson
Stefán Vagn Stefánsson, formaður
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Ágúst Bjarni Garðarsson
Halla Signý Kristjánsdóttir
Umhverfis- og samgöngunefnd
Halla Signý Kristjánsdóttir
Ingibjörg Isaksen
Utanríkismálanefnd
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir
Velferðarnefnd
Líneik Anna Sævarsdóttir
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir



