Fjölskylduvænar áherslur einkenna fjárhagsáætlun
Ágúst Bjarni Garðarsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar segir í yfirlýsingu um samþykkt bæjarstjórnar á fjárhagsáætluninni 2019 að hann sé stoltur enda sé verið að lækka álagningarstuðul fasteignaskatts, bæði á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði og að auki væru fjölskylduvænar áherslur.
„Fjárhagsáætlun næsta árs var samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar nú undir kvöld. Ég er mjög stoltur af þeirri áætlun og öllum þeim sem að henni komu. Í henni er margt gott að finna, m.a. lækkun álagningarstuðuls fasteignaskatts, bæði á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði - og fjölskylduvænar áherslur.
Álagningarstuðull fasteignaskatts lækkar af atvinnuhúsnæði úr 1,57% í 1,40% og af íbúðahúsnæði úr 0,28% í 0,26%.
Aukinn systkinaafsláttur er af dvalargjaldi í leikskólum, afsláttur fyrir annað systkini fer úr 50% í 75% og þriðja systkini úr 75% í 100%. Tekjutengdur afsláttur leikskólagjalda verður aukinn.
Systkinaafslætti í fæðisgjöldum nemenda í grunnskóla verður komið á, þriðja systkini fær frítt.
Fjárfest verður í félagslegu húsnæði fyrir 500mkr. á ári næstu fjögur árin.
Fjármagn til innflytjendamála verður aukið með það fyrir augum að bæta þjónustu við þennan fjölmenna hóp Hafnfirðinga. Mikilvægt er að hlúa vel að þessum hóp sem telur um 10% íbúa.
Ég vil segja að með þessari fjárhagsáætlun séum við að stíga mjög stór og afgerandi skref í átt að betra samfélagi fyrir alla með fjölskylduvænum áherslum.
Þetta og margt fleira á vef Hafnarfjarðar. Áfram veginn,“ sagði Ágúst Bjarni Garðarsson.



