Framboðslisti Framsóknar á Fljótsdalshéraði
B-listi Framsóknar á Fljótsdalshéraði til sveitastjórnarkosninga var samþykktur á félagsfundi í gærkvöldi, sunnudaginn 8. apríl.
Listann skipa 8 konur og 10 karlar en sé litið til 8 fyrstu sætanna sitja þar 5 konur og 3 karlar. Stefán Bogi Sveinsson og Gunnhildur Ingvarsdóttir, bæjarfulltrúar, skipa fyrstu tvö sæti listans. Í þriðja sæti er Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi, ráðunautur og formaður Félags sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum. Fjórða sætið skipar Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, búfræðingur og varabæjarfulltrúi.
Flokkurinn er í dag stærstur í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs með þrjá fulltrúa en situr í minnihluta. Einn núverandi aðalmanna, Páll Sigvaldason, gefur ekki kost á sér áfram.
Eftirtaldir skipa framboðslista Framsóknar á Fljótsdalshéraði:
Stefán Bogi Sveinsson, 37 ára, lögfræðingur og bæjarfulltrúi
Gunnhildur Ingvarsdóttir, 65 ára, fjármálastjóri og bæjarfulltrúi
Guðfinna Harpa Árnadóttir, 36 ára, bóndi og ráðunautur
Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, 23 ára, búfræðingur og varabæjarfulltrúi
Benedikt Hlíðar Stefánsson, 44 ára, vélatæknifræðingur
Jónína Brynjólfsdóttir, 38 ára, verkefnastjóri
Alda Ósk Harðardóttir, 36 ára, snyrtifræðimeistari
Einar Tómas Björnsson, 26 ára, framleiðslustarfsmaður
Jón Björgvin Vernharðsson, 37 ára, bóndi og verktaki
Ásgrímur Ásgrímsson, 51 árs, öryggisstjóri
Guðrún Ásta Friðbertsdóttir, 32 ára, leikskólakennari
Björn Hallur Gunnarsson, 48 ára, verktaki
Valgeir Sveinn Eyþórsson, 23 ára, nemi
Ásdís Helga Bjarnadóttir, 49 ára, verkefnastjóri
Guðmundur Björnsson Hafþórsson, 42 ára, málarameistari og sölumaður
Magnús Karlsson, 65 ára, bóndi
Sólrún Hauksdóttir, 58 ára, ofuramma og bóndi
Guðmundur Þorleifsson, 86 ára, heldri borgari



