Framboðslisti Framsóknar í Árborg samþykktur
Framboðslisti Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Árborg 2014 var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í Framsóknarhúsinu á Selfossi í kvöld. Það var mikill einhugur á fundinum og stefnan sett hátt fyrir næsta vor. Uppstillingarnefnd sem skipuð var í byrjun október lagði fram tillögu sína sem var samþykkt samhljóða. Helgi S. Haraldsson bæjarfulltrúi skipar fyrsta sæti listans og Íris Böðvarsdóttir er í öðru sæti. Ragnar Geir Brynjólfsson situr í þriðja sæti og Karen H. Karlsdóttir Svendsen er í fjórða sæti. Í kosningum árið 2010 fékk flokkurinn einn bæjarfulltrúa kjörinn í bæjarstjórn.
Listinn í heild sinni:
Helgi S. Haraldsson, bæjarfulltrúi og svæðisstjóri, Selfossi
Íris Böðvarsdóttir, varabæjarfulltrúi og sálfræðingur, Óseyri
Ragnar Geir Brynjólfsson, kerfisstjóri og framhaldsskólakennari, Selfossi
Karen Karlsdóttir Svendsen, leiðbeinandi og háskólanemi, Selfossi
Guðrún Þóranna Jónsdóttir, sérkennari, Selfossi
Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Selfossi
Gissur Kolbeinsson, fulltrúi hjá BHM, Selfossi
Björgvin Óli Ingvarsson, trésmiður og sjúkraflutningamaður, Geirakoti
Renuka Perera, veitingakona, Tjarnarbyggð
Björn Harðarson, bóndi, Holti
Guðbjörg S. Kristjánsdóttir, grunnskólakennari, Selfossi
Arnar Elí Ágústsson, sölustjóri, Tjarnarbyggð
Sylwia Konieczna, matráður, Selfossi
Þórir Haraldsson, lögfræðingur, Selfossi
Jón Ólafur Vilhjálmsson, stöðvarstjóri, Selfossi
Sigrún Jónsdóttir, þjónustufulltrúi, Selfossi
Ármann Ingi Sigurðsson, tæknimaður, Selfossi
Margrét Katrín Erlingsdóttir, löggiltur bókari, Stóra-Aðalbóli
Málefnavinna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar hefst strax eftir áramót en öllum íbúum sveitarfélagsins verður boðið að koma að þeirri vinnu með einum eða öðrum hætti.



