Fyrirkomulag strandveiða 2016

Aukning verður á veiðiheimildum á svæðum A og B fyrir strandveiðibáta á strandveiðitímabilinu sem hefst 2. maí og stendur til 31. ágúst 2016. Önnur ákvæði um veiðisvæði, veiðidaga, hámarksafla á dag og fjölda handfærarúlla verða óbreytt frá fyrri árum.

Við úthlutun aflaheimilda er byggt á svæðaskiptingu; svæði A) nær frá A. Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, svæði B) nær frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, svæði C) nær frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps og svæði D) nær frá Hornafirði til Borgarbyggðar.

Strandveiðar hófust fyrst í júní 2009 og var heildarmagnið þá 4.000 tonn. Á komandi vertíð verður leyfilegur heildarafli 9.000 tonn og er það aukning um 400 tonn frá fyrra ári. Reikna má með að útgefin veiðileyfi verði rúmlega 700.

Svæði D sker sig töluvert úr hvað varðar meðalveiði á bát, en þar er veiði að jafnaði mun lakari en á hinum svæðunum.  Síðustu tvö ár voru um 100-200 tonn óveidd á svæði D. Núverandi veiðidagar á svæðum gera ráð fyrir um 30 – 60 dögum í veiði. Fæstir veiðidagar eru á svæði A en flestir á svæði D.

Til þess að ná meiri jöfnuði í meðalveiði á bát á komandi vertíð fyrir svæði A, B og C mun aukningin fara á svæði A og að auki 150 tonn frá svæði D. Þá verða 50 tonn flutt af svæði D yfir á svæði B.

Svæði

Meðal- dagafjöldi á bát 2014/2015

Meðalafli í kg. á bát á dag 2014/2015

Meðalveiði alls tonn  á bát 2014/2015

Fjöldi báta á svæði 2014/2015

Líkleg meðalveiði í tonnum á bát 2016 m.v. reglugerð

 Breyting í tonnum á svæði 2016

 


A

32

394

12,6

233

15,1

+ 550

B

50

305

15,3

141

15,7

 + 50

C

56

282

15,8

147

15,8

 0

D

66

171

11,3

120

11,3

- 200

Úthlutun 2016:

 

Botnfiskur

Maí

Júní

Júlí

Ágúst


Svæði A

852

1.023

1.023

512


Svæði B

521

626

626

313


Svæði C

551

661

661

331


Svæði D

520

455

195

130

Heimild: www.atvinnuvegaraduneyti.is