Nýr formaður SUF Sandra Rán Ásgrímsdóttir

  1. Sambandsþing Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF) var haldið 17.-18. febrúar í Kópavogi og gekk þingið fram úr björtustu vonum. Ný stjórn var kjörin ásamt nýjum formanni. Nýr formaður SUF Sandra Rán Ásgrímsdóttir er 26 ára sjálfbærniverkfræðingur. Sandra Rán er fimmta konan til að gegna embætti formanns SUF í 79 ára sögu sambandsins.
    Sandra Rán útskrifaðist með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands 2013 og meistaragráðu í sjálfbærniverkfræði frá háskólanum í Cambridge 2015. Hún starfar í dag sem verkfræðingur. Sandra er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði en hefur búið í Reykjavík og erlendis frá 2010. Hún hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum innan SUF síðustu ár, verið ritari, gjaldkeri og formaður alþjóðanefndar. Hún hefur sótt viðburði erlendis fyrir sambandið og er varaformaður Ungliðahreyfingar norrænna miðjuflokka (NCF). Þá á hún sæti í miðstjórn og hefur verið á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi í síðustu tvennum þingkosningum.
    Aðrir sem voru kosnir í aðastjórn SUF á nýliðnu þingi eru eftirfarandi:
    Páll Marís Páls­son - Suðvestur 
    Guðmund­ur Há­kon Her­manns­son - Suðvestur
    Fjóla Hrund Björns­dótt­ir - Suður
    Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir - Norðvestur
    Hinrik Bergs­son - Reykjavík
    Ró­bert Smári Gunn­ars­son - Norðvestur
    Snorri Eld­járn Hauks­son - Norðaustur 
    Tanja Rún Krist­manns­dótt­ir - Norðaustur
    Bjarni Dag­ur Þórðar­son - Suðvestur
    Gauti Geirs­son - Norðvestur
    Hild­ur Guðbjörg Bene­dikts­dótt­ir - Suður
    Marta Mirjam Krist­ins­dótt­ir - Reykjavík
    Málefnaályktanir SUF 2017