Umhverfisráðherra býður til morgunverðar á Hallveigarstöðum

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, býður til morgunarverðarfundar fimmtudaginn 17. mars undir yfirskriftinni „Saman gegn sóun“.  Á fundinum verður stefna ráðherra um úrgangsforvarnir, Saman gegn sóun,  kynnt ásamt námsefni um úrgangforvarnir.  Matarsóun verður í forgangi fyrstu tvö ár stefnunnar og verða ýmsar aðgerðir á því sviði kynntar á fundinum, m.a. ný vefgátt um matarsóun og nýtt kerfi strikamerkja sem stuðlað getur að minni sóun.  Fundurinn verður haldinn á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, frá kl. 8.30-10:00 og verður boðið upp á morgunverð.  Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst til thorunn.elfa@uar.is