Iðnaður og orka

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Iðnaður og orka

Íslenskt hugvit hefur leitt til þess að Ísland er í fremstu röð er kemur að nýtingu endurnýjanlegrar orkugjafa, en hingað til lands kemur fólk hvaðanæva að úr heiminum til að sjá og læra af reynslu okkar. Framsókn vill að Ísland verði áfram í fararbroddi er kemur að þróun endurnýjanlegra orkugjafa. Þá vill Framsókn einnig að Ísland verði fremst er kemur að orkuskiptum. Innlendar auðlindir eru þar verulegt forskot og ber að nýta með ábyrgum hætti.

Framsókn telur að nýta eigi þá orku sem framleidd er hérlendis til innlendrar verðmætasköpunar og eflingar samkeppnishæfni Íslands á alþjóðamarkaði. Raforka er undirstaða fjölbreytts atvinnulífs, lífsgæða og verðmætasköpunar hér á landi.

Framsókn vill tryggja að stjórnvöld ýti undir nýsköpun og fjárfestingu á sviði endurnýjanlegrar orku, enda er framþróun á þessu sviði og orkuskipti grundvöllur hagvaxtar í jafnvægi við umhverfið. Framsókn vill leggja sitt að mörkum til að hraða fyrir þessum breytingum.

Framsókn telur mikilvægt að stutt sé við fjölbreytta þróun á endurnýjanlegri orku. Ljóst er að orkunýting hefur aukist til muna ár frá ári og mun koma til með að aukast enn frekar í takt við aukna tæknivæðingu heimsins. Mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa mun því aðeins aukast.

Framsókn leggur áherslu á að mörkuð verði skýrari stefna með það að markmiði að auka nýsköpun þegar kemur að auðlindanýtingu. Fjárfesting í nýsköpun á grundvelli auðlindanýtingar er vænlegri til byggðafestu og tryggja störf í hinum dreifðu byggðum.

Samkeppnishæft þekkingarsamfélag þarf markvissa fjárfestingu, jafnt í grunnrannsóknum sem hagnýtum rannsóknum og mikilvægt er að tryggja gott rannsóknarumhverfi fyrir framúrskarandi vísindafólk. Öflugir samkeppnissjóðir í rannsóknum og nýsköpun eru ein af forsendum samkeppnishæfni íslensks vísinda- og nýsköpunarumhverfis og mikilvægur grunnur að sókn í erlenda sjóði og samstarfsáætlanir.

Einnig telur Framsókn rétt að orku verði ráðstafað eftir mikilvægi. Það er rétt nálgun að festa í löggjöf að nægjanleg orka verði tryggð heimilum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum ef skammta þarf orku. Eðli máls samkvæmt myndu stórnotendur bera þungann af skerðingum, en undir það hugtak flokkast mörg þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki sem skila samfélaginu talsverðum útflutningstekjum. Taka þyrfti tillit til þeirra fyrirtækja í framangreindum aðstæðum og takmarka eins og hægt er að slíkar skerðingar eigi sér stað í rekstri þeirra, með tilheyrandi áhrifum á framboð þeirra á vöru og/eða þjónustu.

Mikilvægt er að tryggja fræðslu og boða til vitundavakningar um nýtingu orku og möguleikum á sparnaði hennar í daglegum rekstri heimilis og fyrirtækis.

Stóriðja

Stóriðja í tengslum við nýtingu á endurnýjanlegri orku hefur skapað fjölda atvinnutækifæra um allt land. Nærsamfélögin eiga að njóta góðs af uppbyggingu grænnar stóriðju og þjónusta við stóriðju á að sækja í nágrenni hennar. Mikilvægt er að huga að umhverfis- og loftslagssjónarmiðum með áherslu á hagkvæma nýtingu auðlinda, lágmörkun sóunar og tryggri orkunýtingu.

Grænn iðnaður

Framsókn telur mikilvægt er að grænn iðnaður verði efldur frekar hér á landi. Þannig má styðja við sjálfbærni með hringrásarhugsun að leiðarljósi og bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Mögulegur ávinningur af grænum iðngörðum getur verið margvislegur. Má þar nefna minni notkun hráefna, s.s. vatns, orku, efna, minni úrgang vegna aukinnar hringrásar, minni losun gróðurhúsalofttegunda og mengunar ásamt lækkuðum rekstrarkostnaði og bættri skilvirkni við framleiðslu.

Byggingariðnaður

Framsókn vill einfalda regluverk og skýra ferla til að lækka byggingarkostnað án þess að slá af kröfum um gæði og öryggi mannvirkja og heilnæmi bygginga. Kröfur sem gerðar eru til byggingaraðila skulu taka mið af umfangi framkvæmda og tegund bygginga. Nýta þarf nýja tækni og lausnir á borð við einingar og einingahús til að hraða uppbyggingu. Tryggja þarf nýliðun og menntunartækifæri í byggingariðnaði um allt land t.d. með eflingu skóla sem bjóða upp á iðn- og tækninám og fjölgun plássa fyrir þá nemendur sem hyggjast afla sér iðnmenntunar. Byggingariðnaðurinn á að fylgja kröfum, alþjóðlegum stöðlum og viðmiðum sem snúa að sjálfbærni og loftslagsmálum.

Horfa þarf til lausna á lóðaskorti og miklum kostnaði lóða. Stjórnvöld þurfa að tryggja nægjanlegt framboð lóða til lengri tíma og koma í veg fyrir tilvik þar sem lóðir ganga ítrekað kaupum og sölu áður en nokkur framkvæmd á sér stað. Koma þarf í veg fyrir að byggingakostnaður, og markaðsverð íbúðarhúsnæðis í kjölfarið, hækki mikið vegna annarra atriða en efniskostnaðar og kostnað við vinnu, þ.e. vegna aukagjalda til ríkis og sveitarfélaga á byggingartíma. Að auki er nauðsynlegt að stjórnvöld tryggi nauðsynlega innviði á svæðum þar sem nýbyggingar rísa, sérstaklega hvað varðar rafmagn, vatn og aðrar grunnþarfir.

Frumframleiðsla í iðnaði

Framsókn vill að boðið verði upp á fjárfestingastuðning eða lán fyrir sprota og nýsköpunarfyrirtæki til að fjárfesta í tækjum og búnaði sem stuðla að aukinni atvinnuþróun þegar kemur að frumframleiðslu.