Verslun og þjónusta

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Green Fern
Green Fern
Green Fern

Verslun og þjónusta

Dagvörumarkaðurinn er mikilvægur í íslensku hagkerfi enda er hann stór hluti af innkaupakörfu heimilisins. Hann stendur frammi fyrir áskorunum sem geta haft áhrif á bæði fyrirtæki og neytendur. Það eru blikur á lofti hvað varðar of mikla samþjöppun, sem getur leitt til færri valkosta og hærra vöruverðs fyrir neytendur.

Smærri aðilar geta því orðið undir í samkeppninni. Til að takast á við þessar áskoranir þarf að vera til staðar öflugt regluverk sem kemur í veg fyrir fákeppni á markaði. Mikilvægt er að fylgjast vel með þróun á dagvörumarkaði og grípa strax til aðgerða ef samþjöppun verður of mikil. Veita þarf litlum og meðalstórum dagvörufyrirtækjum aðstoð til að koma í veg fyrir fákeppni t.d. í formi hvata, styrkja eða tæknilegrar aðstoðar. Einnig skal finna leiðir til að hvetja til nýsköpunar á öðrum dreifileiðum svo sem bændamörkuðum og styðja við innlenda framleiðslu.

Framsókn telur mikilvægt að verslun og þjónusta búi við samkeppnishæft umhverfi og skilvirkt regluverk. Stjórnvöld þurfa að stuðla að heilbrigðri samkeppni á neytendavörumarkaði. Rekstur matvöruverslana í minni byggðarlögum er mikilvægur þáttur í að viðhalda grunnþjónustu um land allt. Efla þarf stuðning við slíkar verslanir í smærri byggðakjörnum í þágu nærsamfélagsins, enda er rekstur matvöruverslana oft hjartað í hverri byggð.

Endurskoða skal lög og reglugerðir varðandi lyfjainnflutning og samhliðainnflutning á lyfjum. Leita skal leiða til að auka samkeppni á lyfjaheildsölumarkaði. Í þessu samhengi má nefna að heimila ætti öllum lyfjaheildsölum að flytja inn lyf sem eru nú þegar með markaðsleyfi hér á landi. Einnig skal leita leiða til að draga úr kostnaði og einfalda ferlið við nýskráningar á lyfjum til að efla samkeppni og draga úr lyfjaskorti.