Vinnumarkaður
Samþykkt á 37. Flokksþingi
Vinnumarkaður
Atvinnuþátttaka og stuðningur við atvinnuleitendur
Jafnrétti á vinnumarkaði
Jafnrétti á vinnumarkaði stuðlar að aukinni framleiðni og fjölbreyttari sýn á verkefni sem leiðir af sér framþróun og stöðugri vinnumarkað. Framsókn leggur áherslu á að aðgerðir svo stjórnendur í atvinnulífinu endurspegli fjölbreytileika kynja í samfélaginu.
Full atvinna
Atvinnuþátttaka allra vinnufærra einstaklinga er ekki aðeins þjóðhagslega mikilvæg heldur einnig félagslega mikilvæg. Mikilvægt er að gefa sem flestum tækifæri á að nýta starfskrafta sína með viðeigandi hætti. Samfélagslegur ávinningur af því er mikill þar sem félagslegum vandamálum fækkar almennt við eðlilega atvinnuþátttöku.
Framsókn vill að áfram verði stutt við verkefni á borð við ráðningastyrki, sem stuðla að virkni hjá atvinnuleitendum og draga úr langtímaatvinnuleysi. Auka þarf samvinnu og skilvirkni á milli stofnana sem annast þjónustu við atvinnuleitendur og annað vinnufært fólk utan vinnumarkaðarins með það að leiðarljósi að styrkja og/eða endurmennta einstaklinga til að auka möguleika þeirra á að finna vinnu við sitt hæfi.
Framsókn vill einfalda félagslegt regluverk með það að markmiði að auðvelda einstaklingum með skerta starfsgetu, s.s. öryrkjum, að fara á vinnumarkað.
Sveigjanleg starfslok
Framsókn vill að fólki sé gefinn kostur á sveigjanlegum starfslokum miðað við heilsufar og getu hvers og eins. Samhliða þarf að skoða breytingar á núverandi lagaákvæði þannig að tekið sé á móti greiðslum í lífeyrissjóði lengur en til 70 ára aldurs. Eins er brýnt að tryggja að atvinnuþátttaka eldri starfsmanna á vinnumarkaði verði ekki til þess að lífeyrisréttindi viðkomandi skerðist.
Stuðningur við atvinnuleitendur
Framfærsla / atvinnuleysisbætur
Framsókn telur mikilvægt að stutt sé við atvinnuleitendur á þann hátt sem mögulegt er, enda geta einstaklingar og fjölskyldur að öðrum kosti lent í skuldavanda sem reynist erfitt að vinna sig úr. Atvinnuleysisbætur skulu vera endurskoðaðar reglulega með tilliti til fjárhæða og greiðsluforsendna eftir samfélagsaðstæðum hverju sinni. Nefna má endurskoðanir sem farið hafa fram á kerfinu í tengslum við efnahagshrunið og heimsfaraldur Covid-19, en reglubundin endurskoðun kerfisins er nauðsynleg til þess að kerfið haldi gildi sínu og einnig til þess að skilgreina hverjir teljast vera „virkir atvinnuleitendur” samkvæmt reglum kerfisins.
Virkni og viðhald starfsgetu
Virkni einstaklinga innan vinnumarkaðar er mikilvæg út frá bæði þjóðhagslegum og einstaklingsbundnum þáttum. Tryggja þarf stuðning við einstaklinga sem eru í hættu á að falla af vinnumarkaði með því að aðstoða þá við að stunda atvinnu í samræmi við hæfni og getu hverju sinni. Í sumum tilfellum getur verið um aðeins tímabundið brotthvarf frá vinnumarkaði ef stuðningur er nægilegur og viðkomandi einstaklingar geta þá snúið aftur til reglulegrar atvinnu félagslegrar virkni með þeim jákvæðu áhrifum sem því fylgir.
Þeir einstaklingar sem ná ekki komast aftur á vinnumarkað þurfa annars konar virkniúrræði til að snúa til, hvort það sé atvinna með stuðningi, hæfing eða annað. Virkni stuðlar að bættri líkamlegri og andlegri heilsu þeirra einstaklinga sem annars ættu á hættu að einangrast.
Starfstengd íslenskukennsla fyrir innflytjendur
Íslenska er lykillinn að samfélaginu. Mikilvægt er að innflytjendum standi til boða aðgengileg og fjölbreytt íslenskukennsla, þ.mt. starfstengd íslenskukennsla. Framsókn vill innleiða hvata til íslenskunáms og tryggja rétt innflytjenda til íslenskunáms á vinnutíma, þeim að kostnaðarlausu.
Innflytjendur fái menntun erlendis frá viðurkennda
Framsókn vill auðvelda innflytjendum að fara í raunfærnimat og fá viðurkennt nám þeirra erlendis frá. Gæta þarf samræmis í mati stéttarfélaga, annars konar samtaka og ríkisins hvað varðar hvernig staðið er að mati af þessu tagi.
Alþjóðlegir sérfræðingar
Framsókn telur ákjósanlegt að gera Ísland að aðlaðandi kost fyrir alþjóðlega sérfræðinga. Þeim getur fylgt framþróun á þeirra starfssviði ásamt því að fjölga alþjóðlegum tækifærum fyrir Íslendinga. Mikilvægt er að dvöl þeirra samræmist reglum um slíka dvöl, þ.m.t. skattalöggjöf.
Huga þarf að því að alþjóðlegir sérfræðingar geta annað hvort verið í fullu starfi á Íslandi, en einnig eru til dæmi um alþjóðlega sérfræðinga sem flokkast sem „stafrænir flakkarar”. Þeir starfa gegnum alnetið og flytja búsetu sína reglulega milli landa. Tryggja þarf að svigrúm sem reglur veita alþjóðlegum sérfræðingum sé ekki misnotað.
Fólk með skerta starfsgetu
Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir fólki með skerta starfsgetu innan námskerfisins og á vinnumarkaði og tryggja þeim tækifæri til jafns við aðra. Framsókn vill að fólk með skerta starfsgetu hafi möguleika á því að taka þátt á vinnumarkaði og vill áfram efla vinnumarkaðsúrræði á borð við atvinnu með stuðningi.
Forvirkar aðgerðir og starfsendurhæfing
Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
Framsókn telur mikilvægt að jafnvægi ríkir milli vinnu og einkalífs. Það samræmist stefnu Framsóknar í fjölskyldumálum.
Forvirkar aðgerðir og vinnuvernd
Vinnueftirlitið þarf að vera öflugra í því að grípa til aðgerða gagnvart fyrirtækjum sem ekki uppfylla lög og reglugerðir um öryggi starfsfólks. Tryggja þarf að þau úrræði sem standa Vinnueftirlitinu til boða, s.s. forvirk úrræði, sektir eða annað, séu nægjanlega sterk.
Kulnun
Mikilvægt er að skoða hvers vegna aukning á kulnun hefur átt sér stað hér á landi. Greina þarf betur orsakir og afleiðingar kulnunar og langtímaveikinda í starfi og vinna gegn þeim þáttum í kjölfarið.
Réttindi og skyldur launafólks
Launajafnrétti
Framsókn ítrekar mikilvægi launajafnréttis þar sem sömu laun eru greidd fyrir sömu störf.
Félagsleg undirboð og brot gegn kjarasamningum
Reglulega koma upp mál sem varða félagslegt undirboð þar sem yfirleitt er um að ræða verkefnatengdan iðnað og erlent vinnuafl. Uppræta þarf með öllu félagsleg undirboð. Það má alls ekki gerast að aðilar nýti sér neyð fólks sér í hag með félagslegu undirboði. Stéttarfélög og opinberir aðilar þurfa að taka höndum saman við að vera vakandi fyrir félagslegum undirboðum og öðrum brotum á kjarasamningum til að tryggja öryggi á vinnumarkaði.
Staða og réttindi einyrkja/sjálfstætt starfandi
Rýna þarf stöðu og réttindi einyrkja/sjálfstætt starfandi einstaklinga með hliðsjón af því hvort sérreglur varðandi þá á vissum sviðum séu nauðsynlegar eða hvort tilefni sé til að einfalda þær og bæta. Skoða þarf réttindi einyrkja hvað varðar fæðingarorlof, margvíslegar kröfur sem gerðar til fyrirtækja um skráningar og vottanir og annað sem mögulega gæti talist óyfirstíganlegt nema fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Svört atvinnustarfsemi
Koma þarf í veg fyrir að gerviverktaka vaxi óyfirstíganlega mikið á þennan hátt og setja þarf skýrar línur. Gerviverktaka er einnig of algeng í öðrum störfum og mikilvægt er að stéttarfélög, ríki og vinnumarkaðurinn í heild hjálpist að við að uppræta hana.
Framsókn vill að brugðist verði við svartri atvinnustarfsemi og leitað verði leiða til að koma böndum á hana.
