Farsæld og jöfnuður

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun

PDF

Flokksþingsályktun

PDF

Flokksþingsályktun

PDF

Orange Flower
Orange Flower
Orange Flower

Farsæld og jöfnuður

Framsókn vill að tryggt verði að farið verði eftir Barnasáttmála SÞ um rétt barna til samvista með báðum foreldrum og að foreldraréttur sé virtur. Tekið var risavaxið skref í átt að auknu jafnrétti í samfélaginu með því að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum landsins í framhaldi er eðlilegt að skoðað verði hvort stíga eigi sama skref á öðrum skólastigum. Halda þarf áfram innleiðingu farsældarlaganna og auka enn vægi snemmtækra íhlutana, grípum börnin okkar sem fyrst þegar erfiðleikar byrja að sjást. Tryggjum þeim þjónustu án biðlista, börn eiga aldrei að bíða eftir þjónustu. Það sama á við um hóp sem lengi hefur orðið eftir í samfélaginu, ungt fólk á framhaldsskólaaldri og upp að 25 ára aldri sem heltist úr námi. Þann hóp er samfélaginu gríðarlega mikilvægt og arðbært að grípa sem fyrst, þar skortir skýra ábyrgð innan kerfisins og því þarf að fylgja fjármagn. Fjárfesting í börnum og ungu fólki er einhver arðbærasta fjárfesting nútíma samfélaga, þar hefur ótrúleg umbreyting orðið undanfarin ár, en við erum rétt að byrja.


  • Framsókn telur að útrýma eigi biðlistum þar sem börn eiga í hlut. Börn eiga ekki að bíða. Mikilvægt er að börn fái strax viðeigandi þjónustu og/eða úrræði án langs greiningarferlis.

  • Framsókn leggur til að námsgögn í grunnskóla séu gjaldfrjáls með það að markmiði að tryggja jöfnuð til náms.

  • Framsókn vill efla samfélagsvitund hjá ungu fólki og styðja við möguleika þess að fá að taka þátt í fjölbreyttum samfélagsverkefnum.

  • Framsókn telur að ekki sé nógu vel hlúð að ungu fólki frá 16 til 25 ára. Það er gríðarlega mikið í húfi fyrir samfélagið í heild að lagst sé á eitt við að halda börnum og ungu fólki í virkni. Til þess þarf að efla úrræði og snemmtæka íhlutun á öllum skólastigum og þvert á öll kerfi.

  • Framsókn vill að gerð sé sérstök ungmennastefna fyrir Ísland.

  • Framsókn leggur til að aðalnámskrár leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskóla verði endurskoðaðar og samrýmdar til að auka og bæta samfellu í námi barna.