Leikskóli og fæðingarorlof
Samþykkt á 37. Flokksþingi
Leikskóli og fæðingarorlof
Leikskólastigið, samspil þess við fæðingarorlof og önnur dagvistunarúrræði eru eitt af brýnustu úrlausnarefnum samtímans. Það að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla er algjört lykilatriði til þess að tryggja börnum og foreldrum sem best tækifæri og lífsgæði. Tekin hafa verið skref í lengingu fæðingarorlofs, þeirri vegferð þarf að halda áfram, en það þarf líka að horfa á allt skólakerfið í þessu samhengi. Þetta er líka samfélagsverkefni, samspil vinnumarkaðar og fæðingaorlofs þarf að verða sveigjanlegra og tækifæri foreldra til hlutastarfa verði aukin. Einnig er ljóst að bregðast þarf við mönnunarvanda leikskólanna. Þar þarf að bæta starfsaðstæður og draga úr álagi. Allt þetta þarf að skoðast með velferð barna að leiðarljósi, vinnudagur barnanna okkar má ekki verða of langur. Leikskólinn getur einnig verið ein lykilstoð þess að auka inngildingu í íslensku samfélagi, með því að tryggja börnum með erlendan menningar- og tungumálabakgrunn aðgengi að leikskóla til jafns við íslensk börn er hægt að stíga stór skref í íslenskukennslu.
Framsókn ætlar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Framsókn vill að fæðingarorlof verði lengt í 18 mánuði.
Framsókn telur að fæðingarorlof eigi að skiptast sem jafnast á milli foreldra barns.
Framsókn vill að lágmarksupphæð fæðingarorlofsgreiðslna sé ákvörðuð í samræmi við lágmarksframfærslu.
Framsókn telur að styðja þurfi betur við námsmenn sem eignast börn á meðan námi stendur eða við lok þess.
Framsókn vill meiri sveigjanleika að hálfu vinnumarkaðarins til að geta tekið fæðingarorlof að hluta á móti vinnu.
Framsókn vill að greidd séu full laun til foreldra í fæðingarorlofi og samhliða sé hámarksupphæð endurmetin og lágmarksupphæð ákvörðuð í samræmi við lágmarksframfærslu.
Framsókn vill láta endurmeta þær reglur sem gilda um fæðingarorlof fjölburaforeldra.
Framsókn vill kanna möguleika á því að framselja hluta af fæðingarorlofi til náinna fjölskyldumeðlima. Horfa þarf þá sérstaklega til einstæða foreldra.
Framsókn vill kanna möguleika á því að hafa skólaskyldu frá 4 ára aldri í leikskóla að undangenginni lögfestingu leikskólastigsins sem fyrsta skólastigs.
Framsókn vill lögfesta heimildir til sveitarfélaga til að setja reglur um systkinaforgang við innritun í leikskóla.
Framsókn telur að bæta þurfi vinnuaðstæður starfsfólks á leikskólum og draga úr álagi.
Framsókn telur mikilvægt að bæta náms- og leikgagnakost leikskólanna til að létta undir álagi og auðvelda faglegt starf.
