Almannatryggingar og lyfjamál

Samþykkt á 37. Flokksþingi

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Flokksþingsályktun um atvinnumál

PDF

Almannavarnir

Sjúkratryggingar

Framsókn leggur áherslu á að sjúkratryggðir einstaklingar hafi jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og búi við heilsuöryggi óháð búsetu og efnahag.

Framsókn leggur áherslu á að samningar séu í gildi um þá þjónustu sem sjúkratryggingar Íslands kaupa fyrir hönd ríkisins.

Framsókn fagnar aukinni greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í ferðakostnaði eftir heilbrigðisþjónustu sem tók gildi um áramótin. Framsókn vill kanna hvort þörf sé á frekari greiðsluþátttöku og tryggja að staðið sé undir ferðakostnaði einstaklinga að öllu leyti.

Framsókn telur að vinna eigi að sameiningu greiðsluþátttökukerfis læknisþjónustu og lyfja. Með því er hægt að tryggja að kerfin tali saman og að það sé samfella í þjónustu sem er mikilvægt fyrir fjárhagslegt öryggi sjúklinga. Fólk á aldrei að þurfa að glíma við fjárhagsörðugleika vegna veikinda sinna, barna eða ástvina.

Lyfjamál

Framsókn telur mikilvægt að endurskoða greiðsluþátttöku einstaklinga í lyfjakostnaði en hann getur verið þungur biti fyrir þá sem hafa minnst milli handanna.

Framsókn vill tryggja einstaklingum sem greinast með sjaldgæfa sjúkdóma aðgang að lífsnauðsynlegum lyfjum og meðferð á Íslandi eða þar sem hægt er að sækja slíka meðferð.

Framsókn telur mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að tryggja framboð af mikilvægum lyfjum hér á landi.