Auglýsing vegna framboða í Suðurkjördæmi

Ágætu félagar!   Á aukakjördæmisþingi okkar, sem haldið var ​á Selfossi, 25. september, var ákveðið að farin yrði uppstillingaleiðin við val á framboðslista flokksins  til​ ​alþingiskosninganna þann 28. október n.k.. 17. Kjördæmisþing KSFS laugardaginn 7. október myndi samþykkja framboðslistann í heild sinni.   Þeir félagsmenn, sem vilja gefa kost á sér á listann eru beðnir að setja sig í samband við  einhvern neðangreindan kjörstjórnarmann. Eins geta félagar, sem vilja koma með ábendingar um fólk til að taka sæti á listanum haft samband við neðangreinda.   Uppstillingarnefnd mun ljúka störfum miðvikudaginn 4. október, 3 dögum fyrir 17. Kjördæmisþing KSFS.   Í 5 efstu sætum framboðslistans skal hlutur hvors kyns ekki vera lægri en 40%, þó skulu ekki vera fleiri en 3 af sama kyni í fyrstu 4 sætunum.   Formaður uppstillingarnefndar er Björn Harðarson, í síma 8618651 og er netfangið: holt@emax.is.   Uppstillinganefnd skipa: Björn Harðarson, formaður, 8618651, holt@emax.is, Framsóknarfélagi Árborgar Karl Pálmason , Framsóknarfélagi Vestur-Skaftafellssýslu Reynir Arnarson , Framsóknarfélagi Austur-Skaftafellssýslu Sigrún Þórarinsdóttir, Framsóknarfélagi Rangæinga Magnea Herborg Björnsdóttir, Framsóknarfélagi Reykjanesbæjar Einar G Harðarson, Framsóknarfélagi Árnessýslu   F.h. uppstillingarnefndar KSFS Björn Harðarson, formaður​