B – hliðin

Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður í Norðausturkjördæmi sýnir okkur B - hliðina að þessu sinni: „Það stekkur enginn hærra en hann hugsar“.

Fullt nafn: Líneik Anna Sævarsdóttir. Gælunafn: Líkar best þegar ég er kölluð Líneik Anna – sumir í fjölskyldunni hafa þó leyfi til að kalla mig Issu en það er gælunafn sem varð til þegar Helga litla systir mín reyndi að segja systir. Aldur: Ný orðin 50 ára. Hjúskaparstaða?  Hef verið gift Magnúsi Ásgrímssyni í næstum aldarfjórðung. Börn? Fjögur snjöll börn - hvert á sinn hátt. Hvernig síma áttu? Samsung eitthvað ... . Uppáhaldssjónvarpsefni? Hef aldrei horft mikið á sjónvarp og það er langt síðan ég hef fylgst með framhaldsþætti en horfi á oft á fréttaþætti og vandaða náttúrulífsþætti og hef gaman af íslensku efni eins og orðbragði og útsvari og þá finnst mér þjóðfélagsgagnrýnin í áramótaskaupinu algjörlega nauðsynleg. Uppáhalds vefsíður: Austurfrétt og Baggalútur. Besta bíómyndin? Finnst bókin oftast betri, hef samt alltaf gaman að því að fara í bíó og besta myndin er sú sem hæfir skapi mínu þann daginn. Hvernig tónlist hlustar þú á? Hef gaman af allaveg tónlist en ég vel sjaldan tónlist sjálf, hlusta frekar á það sem aðrir velja. Uppáhaldsdrykkur: Vatn. Hvað finnst þér best að borða? Allt of margt, skötuselur og lambakjöt klikka aldrei. Hvaða lag kemur þér í gírinn? Eitthvað með Queen. Ertu hjátrúarfull? Held ekki. Hverslags viðfangsefni myndirðu ekki leggja nafn þitt við? Hvers konar mismunun sem gerir greinarmun á fólki t.d. eftir kynþætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum. Hver var fyrirmyndin þín á yngri árum? Foreldrar mínir og kennarar. Hver er fyrirmyndin þín í dag? Ýmsar snjallar konur og menn, út um allt – finnst mikilvægt að reyna að læra af sem fjölbreyttumst hópi fólks. Hverjir eru sessunautar þínir á Alþingi? Valgerður Gunnarsdóttir og Haraldur Einarsson. Hver eru helstu áhugamálin? Lestur og allskonar útivist, gönguferðir, fjallgöngur og smalamennskur. Besti vinurinn í vinnunni? Engin spurning að það er Þórunn hinn Austfirðingurinn á þingi, þekktumst ekki nema af afspurn þar til í nóvember 2012 en eftir að hafa ferðast fleiri km saman í vinnunni er vináttan orðin býsna þétt. Helsta afrekið hingað til? Að ganga með tvíbura og koma þeim í heiminn. Uppáhalds manneskjan? Maggi minn. Besti skyndibitinn? Sushi. Það sem þú borðar alls ekki? Fiskbúðingur úr dós. Lífsmottóið? Reyna að hlusta fyrst. Þetta að lokum: „Það stekkur enginn hærra en hann hugsar“.

 

PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.