Framboðslisti Framsóknar á Hornafirði samþykktur
Framboðslisti Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra í Sveitarfélaginu Hornafirði við sveitarstjórnarkosningarnar 31. maí var einróma samþykktur á almennum félagsfundi Framsóknarfélaganna í Austur-Skaftafellssýslu 12. mars.
Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarstjóri, leiðir listann en hún var í öðru sæti fyrir fjórum árum. Heiðurssæti listans skipar Reynir Arnarson.
Listann skipa eftirtaldir:
Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarstjóri
Kristján S. Guðnason, matreiðslumaður
Gunnhildur Imsland, ritari
Ásgrímur Ingólfsson, skipstjóri
Arna Ósk Harðardóttir, póstmaður
Einar Smári Þorsteinsson, sjúkraþjálfari
Snæfríður H. Svavarsdóttir, leikskólastjóri
Guðbjörg Guðlaugsdóttir, húsmóðir
Gunnar Páll Halldórsson, verkstjóri
Erla Rún Guðmundsdóttir, bóndi
Dóra Björg Björnsdóttir, nemi
Gunnar Sigurjónsson, bóndi
Örn Eriksen, fyrrv. bóndi
Reynir Arnarson, vélstjóri og bæjarfulltrúi
Framsóknarmenn hafa verið í meirihluta í bæjarstjórn í sveitarfélaginu s.l. 12 ár og verið með hreinan meirihluta s.l. 4 ár. Ljóst er með þennan öfluga hóp af frambærilegu fólki ganga Framsóknarmenn og stuðningsmenn þeirra fullir eldmóðs til kosninga.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



