Framboðslisti Framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks á Seyðisfirði samþykktur
Framboðslisti Framsóknarfélags Seyðisfjarðar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 31. maí hefur verið samþykktur. Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri, leiðir listann og í öðru sæti er Unnar B. Sveinlaugsson, vélsmiður. B-listi Framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks fékk tvo fulltrúa á Seyðisfirði á síðasta kjörtímabili.
Listann skipa eftirtaldir:
Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri
Unnar B. Sveinlaugsson, vélsmiður
Örvar Jóhannsson, rafvirkjanemi
Óla B. Magnúsdóttir, skrifstofumaður
Sigríður Stefánsdóttir, loftskeytamaður
Rúnar Gunnarsson, fiskverkamaður
Hjalti Þór Bergsson, bifreiðastjóri
Eygló Björg Jóhannsdóttir, bókari
Gunnhildur Eldjárnsdóttir, eldri borgari
Sigurður Ormar Sigurðsson, bæjarstarfsmaður
Snorri Jónsson, vinnslustjóri
Ingibjörg Svanbergsdóttir, eldri borgari
Páll Vilhjálmsson, sjómaður
Þórdís Bergsdóttir, framkvæmdastjóri
Listann skipa 6 konur og 8 karlar.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



