Framboðslisti Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Skagafirði
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Skagafirði hefur verið samþykktur. Flokkurinn er með 5 sveitarstjórnarmenn í sveitarstjórn Skagafjarðar og hreinan meirihluta.
Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðaráðs leiðir listann en hinir fjórir fulltrúar flokksins gefa ekki kost á sér í efstu sætin. Ingibjörg Huld Þórðardóttir situr í öðru sætinu, Laufey Kristín Skúladóttir í því þriðja og Axel Kárason verður í því fjórða. Þórdís Friðbjörnsdóttir, Viggó Jónsson og Bjarki Tryggvason sem öll eru í framvarðasveit núverandi sveitarstjórnarlista eru í heiðurssætum nú eða þeim þremur síðustu.
Á framboðslistanum eru átta konur og tíu karlar og er jafnt kynjahlutfall í 16 efstu sætunum.
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Sveitarfélaginu Skagafirði:
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn og sveitarstjórnarfulltrúi
Ingibjörg Huld Þórðardóttir, talmeinafræðingur
Laufey Kristín Skúladóttir, markaðs- og sölustjóri
Axel Kárason, dýralæknir
Einar Einarsson, bóndi
Sigríður Magnúsdóttir, sérfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi
Jóhannes Ríkharðsson, bóndi
Atli Már Traustason, bóndi
Eyrún Sævarsdóttir, verkefnastjóri
Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri og doktor í lífvísindum
Björn Ingi Ólafsson, starfsmaður í mjólkursamlagi
Sigurlína Erla Magnúsdóttir, ráðunautur
Sigurður Bjarni Rafnsson, framleiðslustjóri
Guðrún Kristófersdóttir, atvinnurekandi
Snorri Snorrason, skipstjóri
Þórdís Friðbjörnsdóttir, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi
Viggó Jónsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarfulltrúi
Bjarki Tryggvason, skristofustjóri og sveitarstjórnarfulltrúi



