Framsókn í forystu fyrir meira og hagkvæmara húsnæði
Framsókn hefur á síðustu árum verið í forystu um stórtækar umbætur í húsnæðismálum sem hafa haft víðtæk áhrif á íslenskan húsnæðismarkað. Séreignarstefnan blómstrar með Framsókn en aldrei fleiri hafa átt eigið húsnæði – nú um 80% Íslendinga og aldrei fleira ungt fólk hefur eignast sitt eigið húsnæði. Samhliða hefur verið byggt upp kerfi sem tryggir öryggi fyrir þá sem ekki hafa tök á að eignast húsnæði.
Stuðningur við fyrstu kaupendur
Hlutdeildarlánin, sem Framsókn setti í forgang, hafa gert 1200 fyrstu kaupendum kleift að eignast sína fyrstu fasteign.
Aldrei fleira ungt fólk hefur eignast sitt eigið húsnæði – í öllum tekjuhópum.
Norrænt húsnæðiskerfi fyrir tekjulægri
Með stofnframlögum og hlutdeildarlánum hefur Framsókn byggt upp kerfi sem tryggir að tekju- og eignalægri einstaklingar og fjölskyldur hafi aðgang að öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði.
5000 íbúðir hafa þegar verið byggðar fyrir tekjulægri og fyrstu kaupendur, og fjármunir eru tryggðir fyrir aðrar 5000 íbúðir næstu fimm árin um land allt.
Öruggt leiguumhverfi
Réttindi leigjenda hafa verið styrkt til að skapa öruggari leigumarkað þar sem leiguverð er í samræmi við greiðslugetu.
Sérstök áhersla hefur verið lögð á að styðja tekju- og eignalægri fjölskyldur með húsnæðisstuðningi.
Húsnæðisstefna að norrænni fyrirmynd
Fyrsta húsnæðisstefna Íslands var samþykkt á síðasta vorþingi, með yfir 40 aðgerðum sem miða að stöðugleika á húsnæðismarkaði, auknu aðgengi að húsnæði og bættri stöðu heimila.
Stefnan byggir á því að tryggja grundvallarréttindi allra til að hafa öruggt þak yfir höfuðið.
Framsókn hefur náð að samþætta séreignarstefnu og norrænt húsnæðiskerfi, með áherslu á stöðugleika, réttlæti og sanngirni fyrir alla. Þetta eru aðgerðir sem skipta máli og hafa raunveruleg áhrif á líf fjölskyldna.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og fjármála- og efnahagsráðherra.
Greinin birtist fyrst á visir.is 25. nóvember 2024.



