Framsókn í meirihluta í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps

B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna og D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili 2022-2026 í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Guðmundur Haukur Jakobsson og Auðunn Steinn Sigurðsson undirrituðu samkomulagið í Hrútey í gær.

Samstarfið mun byggja á stefnuskrám framboðanna. Lögð verður áhersla á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa, starfsmanna sveitarfélagsins og íbúa þess.

Boðað hefur verið til fyrsta fundar nýrrar sveitarstjórnar þann 7. júní kl. 17:00 í Dalsmynni.

Guðmundur Haukur Jakobsson, oddviti D-listans, verður forseti sveitarstjórnar og Auðunn Steinn Sigurðsson, oddviti B-listans, verður formaður byggðaráðs.

Frekari upplýsingar um kosningarnar af vefnum kosningasaga:

Eftirtaldir listar voru í framboði til í kosningunum 2022: Framsóknar og annarra framfarasinna, Sjálfstæðismanna og óháðra, Gerum þetta saman og H-listinn.

Sjálfstæðismenn og óháðir hlutu 4 sveitarstjórnarmenn, Framsókn og aðrir framfarasinnar 3, H-listinn 1 og Gerum þetta saman 1. H-listann vantaði 11 atkvæði til að fella fjórða mann D-listans.

Úrslit:

Blönduós og Húnavatnshr.

Atkv.

%

Fltr.

B-listi Framsókn o.fl.

249

31.72%

3

D-listi Sjálfstæðism.o.fl.

296

37.71%

4

G-listi Gerum þetta saman

100

12.74%

1

H-listinn

140

17.83%

1

Samtals gild atkvæði

785

100.00%

9

Auðir seðlar

13

1.62%


Ógild atkvæði

3

0.37%


Samtals greidd atkvæði

801

83.70%


Kjósendur á kjörskrá

957



Kjörnir sveitarstjórnarmenn

Atkv.

1. Guðmundur Haukur Jakobsson (D)

296

2. Auðunn Steinn Sigurðsson (B)

249

3. Ragnhildur Haraldsdóttir (D)

148

4. Jón Gíslason (H)

140

5. Elín Aradóttir (B)

125

6. Edda Brynleifsdóttir (G)

100

7. Zophonías Ari Lárusson (D)

99

8. Grímur Rúnar Lárusson (B)

83

9. Birgir Þór Haraldsson (D)

74

Næstir inn

vantar

Berglind Hlín Halldórsdóttir (H)

11

Erla Gunnarsdóttir (B)

48

Sverrir Þór Sverrisson (G)

51