Framsóknarfélag Múlaþings samþykkir framboðslista
Framboðslisti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, var samþykktur á almennum félagsfundi Framsóknarfélags Múlaþings sem fram fór í gær. Kosið verður til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags 19. september næstkomandi.
Framboðslisti Framsóknar hefur tekið lítils háttar breytingum frá listanum sem búið var að samþykkja vegna áður boðaðra kosninga í vor.
Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Seyðisfirði, færist úr þriðja sæti upp í annað sæti. Jónína Brynjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, færist úr fimmta sæti upp í það þriðja og Helga Erla Erlendsdóttir, fyrrverandi skólastjóri á Borgarfirði, fer að eigin ósk úr öðru sæti í það fimmta.
Stefán Bogi Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, leiðir framboðslistann og Eiður Ragnarsson, ferðaþjónustubóndi og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, skipar fjórða sæti framboðslistans.
Framboðslisti Framsóknar var samþykktur samhljóða og mikill hugur er í Framsóknarfólki fyrir komandi kosningar. Sérstakur gestur fundarins var Líneik Anna Sævarsdóttir, alþingismaður, sem færði fundinum og frambjóðendum kveðjur frá þingflokki Framsóknarmanna.
B-lista Framsóknarflokks fyrir sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar, 19. september næstkomandi skipa:
Stefán Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
Vilhjálmur Jónsson, bæjarfulltrúi, Seyðisfirði
Jónína Brynjólfsdóttir, Fljótsdalshéraði
Eiður Ragnarsson, Djúpavogi
Helga Erla Erlendsdóttir, Borgarfirði eystri
Helga Rós Magnúsdóttir, Seyðisfirði
Benedikt Hlíðar Stefánsson, Fljótsdalshéraði
Alda Ósk Harðardóttir, Fljótsdalshéraði
Guðmundur Björnsson Hafþórsson, Fljótsdalshéraði
Jón Björgvin Vernharðsson, Fljótsdalshéraði
Gunnhildur Helga Eldjárnsdóttir, Seyðisfirði
Karl Snær Valtingojer, hreppsnefndarmaður, Djúpavogi
Guðrún Ásta Friðbertsdóttir, Fljótsdalshéraði
Þorsteinn Kristjánsson, Borgarfirði eystra
Valgeir Sveinn Eyþórsson, Fljótsdalshéraði
Óla Björg Magnúsdóttir, Seyðisfirði
Eiður Gísli Guðmundsson, Djúpavogi
Guðfinna Harpa Árnadóttir, Fljótsdalshéraði
Hjalti Þór Bergsson, Seyðisfirði
Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, Fljótsdalshéraði
Þorvaldur Jóhannsson, fv. Bæjarstjóri, Seyðisfirði
Gunnhildur Ingvarsdóttir, Fljótsdalshéraði
Mynd: Frá vinstri, Eiður Ragnarsson, Vilhjálmur Jónsson, Stefán Bogi Sveinsson og Jónína Brynjólfsdóttir.



