Stjórnmálaályktun framsóknarfélaganna í Norðausturkjördæmi (KFNA)

Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna í Norðausturkjördæmi haldið á Hallormsstað 18. október 2014 fagnar þeim árangri sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur náð í ríkisrekstri frá því að stjórn hans tók við. Mælikvarðar sem stuðst er við, til að vega og meta hagsæld þjóða, stefna upp á við. Það er ekki tilviljun. Þeirri stöðu hefur verið náð undir forystu Framsóknarflokksins sem hefur haldið fast í gildi sín sem frjálslyndur félagshyggjuflokkur.